11.05.2012 11:23
Skemmtiferðin
Sælir félagar
Sæmundur í Borgarnesi var að hringja og ætlar hann að taka á móti okkur með viðhöfn á morgun.
Eru ekki allir að verða komnir í gírinn ?
Þó nokkrir hafa látið skrá sig en þar sem X874 tekur 54 farþega þá eru enn einhver sæti laus.
Sjáumst hress.
07.05.2012 22:57
Skemmtiferð
Kæru félagar.
Vonandi eru allir búnir að taka laugardaginn 12. maí frá því nú liggur ferðaáætlunin fyrir.
Stefnan verður tekin upp í Borgarfjörð með viðkomu á nokkrum góðum stöðum eins og safninu á Hvanneyri og vonandi hjá Sæmundi sjálfum. Hann er mjög spenntur yfir að X874 skuli vera á leið í Borgarfjörðinn og gerir allt til að fá sig lausan til að missa ekki af okkur.
Hugmyndir er svo að borða á Akranesi á leiðinni heim.
Farið verður frá Sólningu á Selfossi kl. 12:00 og frá BSÍ kl. 13:00 og áætluð heimkoma er fyrir miðnætti.
Glasalyftingar verða leyfðar um borð að hætti hvers og eins og fargjaldið er 2500 kr. á mann.
Endilega látið fréttina berast og hvetjið gamla félaga til að koma og eiga góðan dag með okkur hinum.
Skráning þarf að liggja fyrir á föstudaginn um hádegi og hana má tilkynna til Eyvindar í s. 8942371,
Fúsa í s. 8920473 eða Helga í s. 8916410
Kveðja, stjórnin.
02.05.2012 01:56
Kominn á ról á ný.
26.04.2012 22:12
Vorferð X874
Sælir félagar nær og fjær.
Nú hefur verið ákveðið að fara í vorferð á X 874 þann 12 maí.
Við vonum að sem flestir sjá sér fært að mæta því þessar ferðir hafa laðað fram bros og ánægju um langa hríð á eftir. Takið daginn frá og mætið með góða skapið.
Nánari ferðatilhögun verður auglýst síðar.
Kveðja Stjórn Selfossrútunnar.
- 1
