Gestabók
24.7.2010 kl. 13:23
Málverk af SBS rútu.
Á málverk af einni af rútunum ykkar eftir svonefndan Óla Th og velti fyrir mér hvort áhugi er hjá félaginu eða einhverjum ykkar á að kaupa það. Sendi ljósmynd af myndinni um hæl ef þið hafið samband á ofangreint netfang.
Elín Vigdís Ólafsdóttir
1.10.2009 kl. 22:39
Amælisferð
Við hjónin mætum þetta verður bara gaman
Eyvindur Þórarinsson
29.9.2009 kl. 23:51
Afmælisferð.
Einhver verður að byrja Þannig að ég er skráður í ferðinna og koma svo.
Ingvar Ólafsson
28.8.2009 kl. 18:30
Trukkakvöld 2009
Við gætum verið kominn heim kl ca 20-22 annars má skoða alla möguleika en mönnum dettur einhvað sniðugt í hug.
Ingvar Ólafsson
27.8.2009 kl. 19:02
Ég með
já ég er að spá í að drífa mig með. Hvenær ætlar þú að vera kominn heim Ingvar? Eða ertu að spá í að verða eftir...:-)
Helgi Jóhannsson
26.8.2009 kl. 21:55
Trukkakvöld 2009
Þá er ég skráður í ferðinna um að gera að fjölmenna og taka kvöldið með trukki.
Ingvar Ólafsson
10.4.2009 kl. 2:51
FLOTT FRAMTAK
Skemmtileg síða, hef grun um að ég gæti komist í FULLT af myndum til að skanna inn og mun reyna það á næstu dögum.
Kveðja til allra
Guðrún
Guðrún Þóris
16.12.2008 kl. 0:35
Nú er að verða gaman
Glæsilegt framtak Ingvar, gaman að sjá þessa gullmola. Setti texta við nokkra. Gott að kíkja á þetta á næturvöktunum.
Siggi Steins
11.12.2008 kl. 21:27
Þessar gömlu góðu
Flott framtak hjá þér Ingvar, það er gaman að skoða þessar gömlu myndir.
Helgi Jóhannsson
30.11.2008 kl. 21:35
Gott framtak.
Komið þið sæl, gaman að fylgjast með ykkur. Ég lít reglulega á síðuna til að fylgjast með enda "gamall SBS bílsjóri" Gríp reyndar aðeins í rútukeyrslu af og til hér á Skaganum til að halda mér við, svo togar þetta alltaf í mann. Enda upp-alin í móanum þar sem SBS verkstæðið stendur núna haha, kveðja Bjarni 'Olafsson, Akranesi.
Bjarni Ólafsson
23.10.2008 kl. 11:38
Glæsilegt framtak
Til hamingju með heimasíðuna ykkar. Gott framtak hjá ykkur að varðveita rútuna með þessum hætti. Það var gaman í Stóragerðisferðinni. Sendi ykkur disk með myndum úr ferðinni.
Georg Theodórsson
18.9.2008 kl. 0:04
Rútuferð að Stóragerði
En er laus sæti í ferðinna á laugard,er ekki um að gera að drífa sig af stað maður er mans gaman.
Ingvar
26.7.2008 kl. 21:32
mjög flott síða. gaman að geta haldið uppi minnunginni um SBS á þennan hátt
Gísli.R
17.5.2008 kl. 19:39
X48
Ég skil, hann var þá orðinn h/f á þeim tíma. Rigor er gamall farþegi hjá Óla Ket. Bjó í Tungunum og fór margar ferðirnar með bílunum hans. Man enn gömlu númerin og bílana: X29, X48, X68,X78,X88, X338 og X548. Ólst upp við þessa bíla og þeir eru mér enn í fersku minni. Alger klikkun líklega!
Rigor
15.5.2008 kl. 22:02
X48
Ólafur Ketilsson hf kaupir X48 af Þingvallaleið en ekki Ólafur Ketilsson og þá var hann hauður og hvítur. Hver er Rigor
Halldór
13.5.2008 kl. 20:16
X 48
Óli kallinn var nú ekki hf á þeim tíma. En X48 var vissulega fallegur, þó fallegri í litunum hans Óla! :)
Rigor
13.5.2008 kl. 20:16
X 48
Óli kallinn var nú ekki hf á þeim tíma. En X48 var vissulega fallegur, þó fallegri í litunum hans Óla! :)
Rigor
3.5.2008 kl. 13:14
Bætt inn mynd
Ég bætti inn mynd af X48 í upprunalegum litum þegar ó Ólafur Ketilsson hf fékk hann frá Þingvallaleið.
Halldór
17.2.2008 kl. 23:53
Saga SBS.
Ég hef sett inn sögu SBS inn í myndaalbúmið.Og lýst vel á að hópurinn hittist á árinu og er með tillögu að hóa hópnum saman þegar næsta Bjarnaball verður haldið í aratungu(er á hverju hausti)Bara auglýsa sætaferðir á x874 nokkrum vikum áður og fjölmenna,Hvernig lýst mönnum á það?
Ingvar ólafsson
26.1.2008 kl. 15:36
Heimasíða A vaktar
avakt-kynnisferdir.bloggar.is
OskarP
6.1.2008 kl. 22:42
Á engin fleiri myndir
Það fer að vanta að eins meira líf í síðunna lumar enginn á góðum myndum.Þeir sem hafa gaman af unimog geta litið inn á 123.is/unimog
Ingvar ólafsson
19.6.2007 kl. 11:24
Alveg magnað framtak hér á ferðinni!! Hlakka til að fylgjast með og ef þetta gefur ekki tilefni til frekari gjörninga -þá á ég við hittings- þá er ég illa svikin.
Kveðja Kristín Tr.
Kristín Traustad.
23.5.2007 kl. 17:00
Frábær hugmynd !! Og að ég tali nú ekki um að hrinda henni í framkvæmd.
Við eigum slatta af myndum sem gaman væri að láta inn á síðuna, Einnig eru til myndir af kvennaferðinni góðu í Bláa Lónið forðum daga.
Kveðja Hafdís og Adam
Hafdís og Adam
23.4.2007 kl. 20:04
Breitt forsíða
Sælt veri fólkið.
Mér datt í hug að breyta forsíðunni aðeins og skipta um mynd. En gamann væri að gera það öðru hvoru svo fólk hefði eitthvað að fylgjast með og bíða eftir.
ATH að Halldór er búinn að bæta við helling af myndum inní gömlu albúminn sem hann var búinn að setja inn svo þar er nóg að skoða.
Verið dugleg að láta heyra í ykkur og senda myndir.
KV Dunni.
Dunni
20.3.2007 kl. 20:53
Gott framtak.
Gaman að sjá þessar gömlu myndir frá gullaldaárum SBS.Nú þarf maður að fara að skoða í mynaalbúmin og koma þeim á netið.Ps hvað verður um X874 á öllum þessum sameiningar ferlum hverig líst mönnum á að stofna áhugamannafélag sem fengi bílinn til varðveislu og hann væri notaður við hátíðlegtækifæri.
Ingvar ólafsson
7.3.2007 kl. 18:13
Frábærar Myndir
Jæja það er aldeilis búið að bæta við myndum úr öllum áttum og það er æðislegt haldið þið að ég hafi ekki séð glitta í gamla X 1110 sem ég á enga mynd af.
Ég dreg mig aðeins í hlé með myndir vegna þess að ég er fluttur í burtu og ekki komin með eins góða nettengingu en Eyvi og Halldór á Laugarvatni eru eldklárir að setja inn svo hafið samband við þá með að koma inn myndum sem þið eigið.
KV Dunni
Dunni
4.3.2007 kl. 22:45
Komnar fleiri myndir..
Þakka fyrir orðin Siggi.
kv.Halldór
Halldór Benjamínsson
25.2.2007 kl. 17:26
Halldór hrokkinn í gírinn !!!!!!!
Nú er eins gott að setja sig í stellingar því e-ð af myndasafninu hans Halldórs er að koma í loftið. Eins gott að koma þeim á netið áður en hann byrjar að borða þær. Ef ég man rétt þurfti maður ekki að maula myndir í eldhúskróknum á Laugarvatni. Þar voru veitingar af bestu gerð, og það var ekki spurt hvað klukkan var, alltaf kaffi og með því. Takk fyrir mig. Siggi Steins.
Siggi Steins
22.2.2007 kl. 22:30
Fleiri myndir síðar..
Sælir félagar
Ég setti inn tvö ný albúm en þetta er aðeins brot af öllum þeim myndum sem ég á, Sigga segir að ég fari að borða myndir bráðum;)
Kveðja frá Laugarvatni, Halldór Benjamínsson
Halldór Benjamínsson
18.2.2007 kl. 19:01
Til hamingju
Frábært framtak enda margar minningar tengdar ferðum með þessum rútum alla æsku og ungdóms ár.Í gamlagaga þekkti maður ykkur alla með nafni og vissi hvað hver vildi með kaffinu (úr Eden)Einngig þekkti maður hvern bíl og átti sína uppáhalds, en blótaði öðrum. Mesta skemmtunin var þegar einhver óvanur fór að keyra bíl, sem ég man ekki hvað hét (en DAF kemur sterkt upp í hugan). Þvílíkar rikkingar og læti, var greinilega ekki bíll sem var á allra færi.
Bestu kveðjur.
Farðþegi frá 1978-1994
Magga
13.2.2007 kl. 0:03
Kærar þakkir fyrir þarft framtak !!!
Dunni minn,miklar þakkir fyrir mjög svo þarft framtak. Það var ekki laust við að hjartað tæki mörg aukaslög þegar ég skoðaði síðuna og minningarnar frá einhverjum þeim besta tíma sem ég man eftir hrönnuðust upp. Eins og Sigurður Einar, þá er ég (því miður) líka fátækur af myndum frá þeim tíma sem ég var með ykkur.En ef þær finnast þá fara þær rakleiðis inn á síðuna. Og til ykkar allra kæru vinir og félagar, vonandi verður ekki langt að bíða næstu endurfunda(ég skal ekki skrópa núna). Kveðja Bjössi.
Bjössi Briem
7.2.2007 kl. 23:26
Fleiri myndir væntanlegar
Ég á eftir að senda fleiri myndir inn á síðuna og vona ég að menn verði þolinmóðir að bíða eftir því . Ef að þið eigið myndir get ég einnig skannað fyrir ykkur og komið því á síðuna
Kveðja Eyvi
Eyvindur Þórarinsson
6.2.2007 kl. 19:38
Flotta síða
til hamingju með flotta síða.Kv Ágúst Harðarson Frá Guðmundi Jónassyni
Ágúst Harðarson
2.2.2007 kl. 19:44
Fleiri myndir
Nú er þetta að fara að virka. Ég er að verða lens með myndir svo sendið sem mest til að halda þessu fersku. Það er hægt að koma myndum með E-mail eða senda til mín og ég get skannað. Hafið bara samband og endilega kvittið í gestabókina.
KV Dunni.
Dunni
1.2.2007 kl. 14:22
Glæsilegar myndir
Nú er þetta farið að virka. Myndirnar sem eru komnar vekja upp góðar minningar og sögurnar koma upp í huga manns. Það var glatt á hjalla í kaffistofu Kynnisferða þegar við vorum að skoða þetta og Þórir fór á kostum þegar myndirnar af 875 voru komnar. Var að lýsa því fyrir nærstöddum þegar Laugi var á honum og keyrði í skaflinn og mótorkassin fylltist af snjó og opnaðist og snjórinn fór allur inní bíl. Bætti svo við "hann var á leið upp Kambana".
Sigurður Steinsson
19.1.2007 kl. 22:13
Frábært framtak.
Þetta þirtu fleiri að gera.Þetta var gamann að skoða.Takk fyrir
Baldur 'OLafsson
4.1.2007 kl. 23:28
Glæsilegt
Loksins eitthvað sem gaman er að skoða !!
Guðni Sveinn
26.12.2006 kl. 21:11
Til hamingju
Flott heimasíða sem verður gaman að fylgjast með.
Kv. Matti
Marteinn Guðmundsson
24.12.2006 kl. 0:28
Til hamingju.
Gaman að sjá þetta. Fer í favourites hjá mér.
Heimir Tómasson
23.12.2006 kl. 23:59
Til hamingju
Þetta góða framtak á eftir að virka. Ég er reyndar alltof fátækur af myndum, en hef þeim mun meira gaman af að skoða þær. Svo er bara að halda áfram og halda endurfundagleði með vorinu.
Sigurður Steinsson
23.12.2006 kl. 17:50
að skrifa við myndir kemur seinna en þeir sem senda myndir mættu skrifa við svo hægt sé að setja við myndir texta.
Ekki var frá því að mér volnaði um hjartaræturnar þegar maður sá gamal kunn andlit.
Verið dugleg að láta heyra í ykkur og sendið myndir bæði af fólki og bílum.
KV Dunni.
Dunni
23.12.2006 kl. 13:41
MYNDIR
Það mætti nú alveg skrifa eitthvað við myndirnar.
Siggi
18.12.2006 kl. 11:37
Til hamingju með þessa heimasíðu þetta er þarft framtak og skal ég senda myndir seinna
Kær kveðja
Eyvi
Eyvindur Þórarinsson
18.12.2006 kl. 11:16
Verið að prufa Gestabókina
Sæl öll er að prufa gestabókina verið dugleg að láta heyra í ykkur.
Dunni
