10.06.2008 20:14
Selfossrútan - lög félagsins.
![]()
![]()
Hérna koma drög að lögum félagsins sem að menn geta kynnt sér og komið með athugasemdir ef þeir vilja sjá einhverjar breytingar,síðan verða greidd um þau athvæði á næsta félagsfundi.Kv Ingvar.
Lög Selfossrútunnar
1. gr.
Heiti félagsins er Selfossrútan , Geirakot 1 801 Selfoss.
2. gr.
Heimili félagsins og varnarþing er að Selfossi.
3. gr.
Tilgangur félagsins er að varðveita bifreiðina X-874 sem er fornbíll. Félagið er eingöngu áhugamannafélag og mun ekki stunda atvinnurekstur með neinum hætti eða aðra fjárhagslega starfsemi.
4. gr.
Tilgangi sínum hyggst félagið ná með því að Viðhalda og varðveita bifreiðina X-874.
5. gr.
Félagsmenn geta þeir orðið sem að áhuga hafa á að varðveita bifreiðina X-874.
6. gr.
Rétt til setu á fundum félagsins hafa allir félagsmenn sem hafa greitt félagsgjöld.
7. gr.
Heimilt er að víkja félögum úr félaginu ef þeir gerast brotlegir við lög félagsins. Félagsmaður telst því virkur að hann greiði félagsgjald að fullu eigi síðar en þrem vikum fyrir aðalfund ár hvert.
8. gr.
Greiðsla félagsgjalda skal fara fram fyrir 1.mars ár hvert og skal upphæð þeirra ákveðin á félagsfundi.Stofngjald skal vera 20.000 kr en heimilt er að breyta stofngjaldi á félagsfundi.
9. gr.
Reikningsár félagsins er almanaksárið. Reikningum skal lokað 14 dögum fyrir aðalfund og þeim skilað til endurskoðenda félagsins.
10. gr.
Aðalfundur félagsins skal haldinn fyrir 1.maí ár hvert. Til aðalfundar skal boða með tryggum hætti. Afl atkvæða ræður úrslitum á aðalfundi nema annað sé sérstaklega tekið fram í lögum þessum.
11. gr.
Stjórn félagsins skipa 5 menn, þ.e. formaður,gjaldkeri ,ritari og tveir meðstjórnendur. Stjórnarmenn skulu kjörnir til tveggja ára tveir í senn en formaður skal kjörinn til 3 ára á aðalfundi. Formaður boðar stjórnarmenn á stjórnarfundi þegar þurfa þykir. Daglega umsjón félagsins annast gjaldkeri. Að öðru leyti skiptir stjórn sjálf með sér verkum. Kjörnir skulu tveir skoðunarmenn reikninga .
12. gr.
Dagskrá aðalfundar skal vera:
Skýrsla stjórnar
Stjórn leggur fram endurskoðaða reikninga félagsins
Umræður um skýrslu og reikninga
Lagabreytingar
Kosning formanns
Kosning stjórnar
Önnur mál
13. gr.
Lögum félagsins verður aðeins breytt á aðalfundum félagsins. Tillögum til lagabreytinga skal skila 30 dögum fyrir aðalfund til stjórnar og skal stjórn í fundarboði geta þess ef lagabreytingatillaga hefur komið fram.
Nái lagabreytingatillaga samþykki 2/3 hluta fundarmanna telst hún samþykkt. Aðalfundur er lögmætur ef 20% félagsmanna er mættur til fundarins.
14. gr.
Stjórn félagsins ræður málefnum félagsins með þeim takmörkunum sem lög þessi setja. Hún tekur ákvarðanir um starfsemi og er ábyrg fyrir fjárreiðum og skuldbindingum félagsins.
15. gr.
Stjórnarfundi skal boða með tryggum hætti. Stjórnarfundur er ályktunarhæfur ef minnst 3 stjórnarmenn sækja fund. Afl atkvæða ræður úrslitum á stjórnarfundum. Ef atkvæði falla jafnt ræður atkvæði formanns.
16. gr.
Firmaritun félags er í höndum meirihluta stjórnar.
18. gr.
Stjórn félags er skylt að efna til almenns félagsfundar ef minnst 1/3 félagsmanna óska þess. Almennir fundir skulu auglýstir á tryggilegan máta með minnst 10 daga fyrirvara.
19, gr.
Ef að til kæmi að félaginu yrði slitið og skal þá afhenda Samgöngusafninu í SKógum allar eignir og muni félagsins til varðveislu. Félaginu má ekki slíta nema það hafi verið sammþykkt með 2/3 hlutum greiddra atkvæða á aðalfundi Félagsins.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
